Einkalíf fólks
16.6.2012 | 15:21
Þetta er mjög sorgleg þróun að hér á landi sé að myndast paparazzi ómenning eins og við þekkjum frá Bretlandi og Bandaríkjunum. En jú jú auðvitað er þetta ekki jafn gróft hérna en samt sem áður finnst mér þetta vera eitthvað sem við eigum að stöðva strax áður en það fer lengra.
Mín skoðun er sú að einkalíf fólks eigi að vera heilagt og að það skipti ekki máli hvort viðkomandi sé fræg kvikmyndastjarna eða Jói pípari. Það er eitt að taka myndir af leikurum þegar þeir eru í vinnunni t.d. á tökustað eða á rauða teppinu, allt annað að taka myndir af þeim þegar þeir er að rölta um bæinn með fjölskyldunni.
Það á að banna þetta með lögum.
|
Tom og Katie á göngu um miðbæinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


truthseeker
hordurt
huldumenn
corvo
salmann
seinars
thorsteinnscheving

Athugasemdir
Banna papparazzi með lögum ?
Það yrði ekki í lítið lagst. Við sem náum ekki einu sinni að koma lögum yfir þá sem rændu þjóðina
hilmar jónsson, 16.6.2012 kl. 15:42
En fjármálaelítan er líka með svo mikil ítök. Það er auðveldara að koma svona málum í gegn.
Hallgeir Jónsson, 16.6.2012 kl. 15:50
Það virðist vera manngrey að nafni Júlíus Sigurjónsson sem hefur ekki betra að gera... Eymdarlegt.
jói (IP-tala skráð) 16.6.2012 kl. 18:30
Sammála, einkalífið ætti að fá að vera í friði, en tel þó erfitt að banna þetta með lögum.
Eina sem hægt er að láta á reyna, er að fjölmiðlar sýni sóma sinn í því að láta svona myndbirtingar eiga sig. Stjörnunar munu segja vinum sínum frá, hvað það er þá mikil avöru hvíld í því að fara til Íslands, sem ég gæti einmitt trúað að væri oft ástæðan fyrir að þær koma hingað, vegna eldir orðróms um frið. Markaðssetning tekur tíma, svo það má ekki skemma þetta með því að fara sömu braut og önnur lönd, sem eiga auðvitað að skammast sín. Við eigum ekki að bíða eftir ,, Lady Diana" banamyndatöku. Það er það eina sem mun gerast á endanum, verði þetta papparazzi látið blómstar óáreitt með aðstoð Moggans í forsvari !!!
Hjördís Vilhjálmsdóttir, 16.6.2012 kl. 18:49
Vá, hvað ég er sammála þér og takk kærlega fyrir að vekja máls á þessu! Niður með skrýlsmennsku! Niður með lágmenningu! Niður með mannréttindabrot! Einkalíf er mannréttindi! Manneskjur breytast ekki í einhvers konar hálf-menni eða ómenni við það að vera fatlaðar, svertingjar, innflytjendur EÐA kvikmyndastjörnur. EIN MANNRÉTTINDI fyrir ALLA!!!!!! Réttlátt Ísland!
Réttlæti takk! (IP-tala skráð) 16.6.2012 kl. 23:44
Ég fékk mér ís í gær.
Óli Póló (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 00:56
Óli: Og hvað voru engir ljósmyndarar sem tóku mynd af því? ;)
Hallgeir Jónsson, 17.6.2012 kl. 02:53
Ég held að flestir Íslendingar séu sammála um það að hér verði griðarstaður fyrir þá frægu sem er hundeltir út um allan heim, hugsið ykkur ef það væri daglegt brauð að sjá störnurnar spóka sig um götur Íslands og segja ,,daginn" á móti okkur eins og við gerum flest á göngum :) Ég legg til að fjölmiðlar taki einungis myndir ef það er leyft og falist eftir því. Ferðaiðnaðurinn taki fram að erlendir ferðamenn ónáði ekki þá sem þekktir eru, því slíkt er ekki liðið á Íslandi. Hér viljum við að allir fái að vera eins og njóta ferðar sinnar og viðveru á okkar landi. Svo tökum saman höndum og verum dugleg að dissa blöðin sem falla í þetta paparazzí dæmi.
Linda (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 10:36
Hér er því miður allt apað eftir því sem gerist í útlandinu, þ.e. á höfuðborgarsvæðinu. Hér fá menn að spóka sig á hjóli án þess að eftir sé tekið nema af einstaka mönnum eins og þegar sýsla barst til eyrna að Mike Jagger væri hér á hjóli. Þá stökk hann út og heimtaði mynd af þeim tveim saman, en hann Ólafur Helgi er náttúrulega Stones fan númer eitt
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.6.2012 kl. 13:43
Íslendingar ganga flestir ekki lengra en að hvísla að næstu manneskju og glotta smá. Í Bandaríkjunum gerist það oft að stjörnur fá oft svo ákveðinn og þéttan hóp í kringum sig að það skapar slysahættu.
Þetta er mikill menningarmunur og auðvitað á hann að endurspeglast í fjölmiðlum.
Hallgeir Jónsson, 17.6.2012 kl. 14:19
Láta þetta fólk í friði bara. Það er komið hérna til að njóta landsins og Tom ætlar að halda hér upp á fimmtugsafmælið og er í fríi.
Annað kannski að taka myndir af honum þegar upptökur á þessari kvikmynd hefjast og maðurinn er í vinnunni. En þegar hann er að ganga hér um bæinn með fjölskyldu sinni að þá er að mínu mati réttast að láta hann í friði og virða einkalíf þessarar fjölskyldu.
Einar (IP-tala skráð) 18.6.2012 kl. 16:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.