Þóra verður aldrei forseti allra íslendinga

IceSave
Þóra Arnórsdóttir rangtúlkar forsetaembættið á þann hátt að það sé valdalítið sameiningartákn. Nú búum við á tímum þar sem þjóðin vill fá aukið lýðræði, að fá að kjósa um ýmis mál, í stað þess að eingöngu merkja við eitt X tvisvar til þrisvar sinnum á fjögura ára tímabili. Þeir aðilar sem tala um hefðir og sameiningartákn eru fyrst og fremst þeir sem vilja gelda forsetaembættið í nafni þingræðis.

Forsetaembættið er virkt valdamikið embætti og þó það sé æskilegt að halda því frá flokkspólitíkinni þá verður það samt sem áður alltaf pólitískt upp að ákveðnu marki á meðan þessi völd fylgja því. Þess vegna er það óraunhæft að forsetinn geti verið sameiningartákn en við höfum einmitt íslenska fánann og skjaldmerkið til að sinna því hlutverki. Forsetinn getur því rétt eins og aðrir stjórnmálamenn ekki haft alla þjóðina á bak við sig. 

Vigdís Finnbogadóttir gerði þau stóru mistök á sínum tíma að vísa ekki EES samningnum til þjóarinnar. Samninginn sem átti stóran þátt í að mynda bóluhagkerfið sem hér myndaðist sem svo leiddi til hrunsins. Það hefur sýnt sig að það er mjög mikilvægt fyrir land og þjóð að hafa virkan forseta sem þorir að grípa inn í þegar það myndast gjá milli þings og þjóðar. Forseta sem þorir að færa valdið til þjóðarinnar þegar ríkisstjórn landsins vinnur gegn hagsmunum hennar.
 
Nú getur sú staða myndast eftir næstu kosningar að engir flokkar nái saman í stjórnarmyndun. Forsetinn mun því þurfa að eiga frumkvæði að myndun utanþingsstjórnar. Ef sú staða kemur upp hvort viljum við þá virkan forseta með mikla reynslu af stjórnmálum eða forseta sem lýtur á sig sem veislustjóra og tákn? 
 
Ólafur Ragnar Grímsson fær mitt atkvæði. Ég einfaldlega þori ekki að taka sénsinn á að hafa hér forseta sem verður undirgefinn gagnvart stjórnvöldum á þessum erfiðu og örlagaríku tímum. 

mbl.is Meginvald forseta er áhrifavaldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dittó hér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.6.2012 kl. 19:19

2 identicon

Alltaf verður það betra og betra.

Nú er hrunið Vigdísi Finnbogadóttur að kenna !

Láki (IP-tala skráð) 13.6.2012 kl. 21:37

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einnig mitt,en ath. mikið er rekin áróður fyrir að samþykkja ,,stjórnarskrána,, sem stjórnlagaráð setti saman,þar séu skýr ákvæði um að þjóðin geti sjálf kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég óttast að þar fyrirfinnist ehv, sem ber að varast,Jón Valur hefur bent á það. Þar sem vitað er að aðal mál Jóhönnustjórnar er að koma okkur með öllum ráðum í Esb.treysti ég engu sem hún á frumkvæði að koma á laggirnar.

Helga Kristjánsdóttir, 13.6.2012 kl. 23:10

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki var nú frammistaðan beysin hjá henni í kvöld, tókst að fara kring um hlutina án þess að svara neinu. Þá var nú munur á henni og Herdísi í gær. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.6.2012 kl. 23:21

5 Smámynd: Sólbjörg

Engin leið að fá heila brú í hvað Þóra var að fara. Byrjaði á meiningu og fór strax út í önnur mál, svona talaði hún fram og til baka, út og suður. Þáttastjórnendur urðu marg endurtekið að upplýsa að þau skildu ekki hvað hún meinti eða væri að reyna að segja.

Lokasvar hennar var vægt sagt......sic!

Sólbjörg, 14.6.2012 kl. 00:09

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm vesalings konan er eiginlega búin að mála sig út í horn... eða þannig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.6.2012 kl. 00:11

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 Sæll Hallgeir Jónsson, Vigdís var góður forseti og okkur til mikils sóma en hún hefði getað brugðið útaf vananum og lofað okkur að ráða þessu.  En hún hafði ekki stríðsheila, hún var málamiðlari, sáttasemjari og það er allt í lagi því að þessi aðgerð var ekki óafturkræf. 

En þegar um er að ræða óafturkræf mál sem varða samskipti við aðrar þjóðir, ríki, þá þarf að halda vökusinni og kunna að bregðast við án ótta, en með þekkingu, rökvísi og óttaleysi þess sem trúir á málstaðinn og kann að tala.

Allt þetta hefur Ólafur, en ef ekki væri yfirhangandi óráð og flárá núverandi ríkisstjórnar þá myndi ég trúlega gefa Ólafi frí með henni Dorid sinni og kjósa Herdísi.  En það er bara ekkert næði til að slappa af og vera kærulaus, því það er vísasta leiðin til að tapa orustuni og vegna óafturkræfni þá væri stríðið tapað líka og hinn Spánski Karrlos kæmi til að veiða fiskinn sem við áttum.

Hrólfur Þ Hraundal, 14.6.2012 kl. 00:21

8 identicon

Plottið hjá RÚV,var dagskrárliðurinn eftir viðtal Þóru. Vinsæll tónlistarmaður að nafni Jamie Cullum,plottið að fá yngri kynslóðina að skjánum til að bera Þóru augum,og eyrum. Tónlistarþáttur í einn og hálfan tíma í miðri viku og endaði um kl,hálfeitt.Lúmskt plott sem sennilegast hefir tekist að ýmsu leiti.

Númi (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 09:22

9 identicon

Það getur enginn orðið forseti allra íslendinga... ætli ég verði ekki að kjósa Óla.. bara til að hindra að fleiri grísir komist á ríkiseftirlaunaspenan... einhver verður að hugsa um sparnað.
Hvað haldið þið að það þurfi margar vinnandi hendur til að púkka undir rassgatið á manni eða konu sem snobbast þarna á Bessastöðum í embætti fáránleikans.. þúsundir manna, allur þeirra skattur. Það má nota þessa peninga í eitthvað þarfara en þetta kjaftæði.

Mér finnst þetta forsetarugl fáránlegt, þið sjáið sjálf að frambjóðendur eru í vandræðum með að skilgreina hvað þetta embætti er... því þetta er rugl og sóunar embætti fornmanna... við þurfum ekki alpha-fe/male; 
Afhverju drögum við ekki bara út Barbie og Ken úr þjóðskra, látum þau leika kóng og drottningu.. í ár, drögum svo aftur..

DoctorE (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 09:46

10 identicon

Númi, ég er af "yngri kynslóðinni" en sé enga tenginu milli viðtalsins við Þóru Arnórs og BBC tónleika Jamie Cullum.  Þóru fylgdist ég ekkert vel með en tónleikarnir voru ágætir. Gætir þú lýst þessu nánar eða er þetta bara samsæriskenning?

Skúli (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 10:35

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég beið eftir samtalinu við Þóru og óvart fékk að heyra tónleikana, þeir voru stórkostlegir.  Þvílíkur gullmoli sem þessi maður er.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.6.2012 kl. 10:54

12 identicon

Sammála. Ef eingöngu Andrea, Herdís og Ólafur væri í boði fengi Ólafur aldrei atkvæði mitt. En ég vil ekki taka þá áhættu að skrautdúkkur skaðlegar lýðræðinu eins og Þóra komist til valda. Það er sorglegt að þurfa að kjósa Ólaf í stað kjarnakvennanna tveggja eingöngu svo hún komist ekki til "valda", ef tala má svo um strengjabrúðu sem ætlar að láta aðra segja sér fyrir verkum, og skorti á þeim, og láta peningaöflin toga í strengina. Ef Íslendingar væru látnir í friði með sínar skoðanir en ekki agressíft heilaþvegnir dag og nótt af fjölmiðlum sem eru á valdi sama auðvalds og steypti okkur nær í glötun og vill að við missum sjálfstæði okkar og að almenningur sofni og sofi svefni heilaþvotts, þá hefði Þóra, þeirra útvaldi dávaldur, eins konar "illa Maria" í Metropolis bíómyndinni, aldrei svona mikið fylgi, því auðvitað myndi fólk frekar velja milli kvenhetjanna tveggja. En vegna þess landinn hefur verið heilaþveginn til að kjósa þessa konu af plebbagangi og forheimskun, þá neyðist ég því miður til að kjósa Ólaf. Ég veit að mjög margir hugsa eins. Ara Trausta, sem er meinlaust gamalmenni, þó virðulegri sé en Þóra, eða Hannesi, sem er tvífari Þóru í öllum skoðunum og hegðun, bara klaufalegri og verr þjálfaður af sýndarmennskuöflunum, þarf engar áhyggjur að fara af. Ef Þóra væri ekki í framboði myndi ég því ekki kjósa Ólaf Ragnar. Og ég veit að flestir vinir mínir, kunningjar og fjölskylda eru sammála mér. Það væri einfaldlega að segja lýðræðinu stríð á hendur að kjósa andlýðræðislega manneskju sem ætlar að fljóta með okkur sofandi að feygðarósi á viðsjárverðum tímum, og hefur tekið að sér að vera hin staurblinda til að leiða blindaða þjóð af sviðsljósi fjölmiðla...beint fram af bjargbrúninni...til slátrunnar og þrældóms.

 Lifi FRELSIÐ! Lifi LÝÐRÆÐI! Nei við Þóru!

Jón Jónsson (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 12:14

13 identicon

Sem faðir, bróðir og eiginmaður get ég ekki hugsað mér að kjósa konu sem ætlar að draga kvenímyndina aftur á steinöld. Það er kominn tími fyrir sjálfstæðar konur sem láta verkin tala, en ekki einhverjar fótósjoppaðar ljóskur sem ætla sér að hafa eins lítið um eigin örlög og annarra að segja og mögulegt er, en ætla sér að kaupa hallærislegan glamúr fyrir hlýðni og þöggun. Sem eru tilbúnar að fara í dýrar og fínar utanlandsferðir og hitta fínt fólk fyrir það að hlýðnast yfirvaldi auðs og stjórnvalda í einu og öllu, þegja og svæfa þjóðina með innantómum slagorðasöng. Konu sem hefði sagt já við Icesave. Konu með þrælslund. Ekki þegar ég get valið milli tveggja kvenna sem væru báðar tilvalin fyrirmynd fyrir mínar eigin dætur. Konur með frelsisást í brjósti og hugrekki til að láta verkin tala og fylgja eigin sannfæringu. Ég kýs því Herdís, eða Andreu. Get ekki alveg valið. Ég fer ekki að kjósa Ólaf, afþví mér finnst hann ekki hafa staðið sig nógu vel, en ég fer ekki að kjósa neinn hinna slefandi varðhunda fasísks auðvalds sem í boði eru í þetta starf.

Páll (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 12:20

14 identicon

Takk fyrir að vekja athygli á ófyrirleitni og skorti á heiðarleika sem samsærismennirnir vinir Þóru sýna. Höldum augunum opnum fyrir öllu svona. Við búum því miður ekki lengur í frjálsu landi, heldur erum markvisst heilaþveginn í gegnum fjölmiðla af skrautdúkkum sem vita ekki til fulls fyrir hvað andstyggilegu og ólýðræðislegu öfl þær starf. Þá kæmi þeim ekki blundur á brá það sem eftir væri æfinnar. Fjöregg lýðræðisins er viðkvæmt og brothætt. Látum ekki hrifsa frá okkur frelsið. Takið vel eftir öllu sem Herdís segir um fjölmiðla, hún er veltengd og hámenntuð kona sem veit um hvað hún er að tala og hefur upplýsingar sínar víða að.

Páll (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 12:24

15 identicon

Það er dálítið áberandi að yfirlýstir stuðningmenn Ólafs nota hvert tækifæri sem gefst til að dásama Herdísi. Ástæðan er augljós.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 13:02

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er það augljóst?  Ég hrósa henni af því mér finnst hún koma vel fyrir og vera skelegg og kröftug kona, á hún ekki að njóta sannmælis þó ég hafi ákveðið að kjósa Ólaf Ragnar?  Mér finnst einfaldlega Herdís betri kostur en Þóra og ég segi það bara hreint út.  Ertu að fara fram á þöggun Svavar?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.6.2012 kl. 13:35

17 identicon

mig mindi ekki unda ef tad verda einkver kosningasvik i gangi , tad hefur svosum komid firir anaestadar

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 13:47

18 Smámynd: Sólbjörg

Tek undir að kosningaskipulag gengur einmitt út að "hanna atburði", fólk sem ekki þekkir slíkt áttar sig ekki á að slíkt sé gert sem á líka að vera meininginþ.Gott dæmi er eins og það að hafa tónleika strax á eftir Þóru sem eiga að draga að ungt fólk með litla pólitíska yfirsýn. Ef einhver þeirra hefur horft á lokasvör Þóru og séð vandræðaganginn á henni þá var það ekki til að afla henni fylgi. Meira að segja þáttaspyrjandinn hún Margrét var greinilega hugsi eftir viðtalið.

Sólbjörg, 14.6.2012 kl. 14:07

19 identicon

Ég hugsa að raunveruleg ástæða þess að allt í einu vill þingið keyra í gegn frumvarp villt og galið og í örvæntingu sem allir Samfylkingar (samsæris) -menn eru sammála virðist vera, ...um það að leyfa skoðanakannanir rétt fyrir kosningar og á kjördag...sé einfaldlega sú að flestir eru búnir að sjá í gegnum Þóru, hversu innantóm, leiðitöm og kjánaleg hún er, og um leið sjá hversu frábærir valkostir margir aðrir frambjóðendur eru.......en með því að birta villt og galið vel valdar skoðanakannanir með vina sinna fjölmiðlamannanna vilji þeir með hræðsluáróðrinu að stilla upp tveimur valkostum (sem er að stilla upp til STRÍÐS, í stríði deila jafnan tveir, og kljúfa þannig þjóðina (divide and conquer, það sem auðvaldið hér er að reyna að gera af lýðræðis- og frelsishatri) vonast þeir til að hræða sem mest af heilalausum skrýl til að kjósa Þóru í dáleiðslutransi vel valdra skoðanakannanna og fjölmiðlaáróðurs.

VAKNIÐ STRAX!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 16:47

20 Smámynd: Skeggi Skaftason

Öll komment hér eru gott dæmi um klikkaða orðræðu dagsins í dag. Orðræðu sem forseti espir upp frekar en hitt.

Meðal annars af þeim sökum vil ég kjósa annan forseta en Ólaf Ragnar. Þóra er sá frambjóðandi sem mér finnst langframbærilegastur. Skýr, greind, heiðarleg, traust.

Ég styð Þóru.

Skeggi Skaftason, 14.6.2012 kl. 18:11

21 Smámynd: Hallgeir Jónsson

Skeggi bíður spenntur eftir því að Þóra kvitti undir IceSave-4.

Hallgeir Jónsson, 14.6.2012 kl. 18:17

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Og hvað hefur þú fyrir þér í því Skeggi að Ólafur kyndi undir svona orðræðu.  Þetta er nefnilega lúmskt skot fyrir neðan beltisstað.  Staðhæfðu eitthvað og láttu sem það sé staðreynd. Látum þá neita því.  Ómerkilegt bull.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.6.2012 kl. 18:58

23 Smámynd: Sólbjörg

Skeggi varðandi fullyrðingar þínar um Þóru þá er hún kannski skýr í tali en svo sannarlega ekki í innihaldi eða merkingu orða sinna sem þýðir að Þóra er ekkert skýr. Greind hennar stígur ekki neinar hæðir heldur samanber hve léleg ræðumanneskja hún er ásamt því að koma illa orðum að því sem hún er spurð um. Heiðarlega, ekki allskostar, þegar hún afneitaði tengslum við samfylkinguna og man ekki eftir að hafa kennt hjá samfylkingunni- slíkt er ekki að vera hrein og bein. Traust er hún því miður ekki heldur hún vil ekkert segja sem skiftir máli í afgerandi málum sem reynir á forsetaembættið t.d hvernig hún hefði brugðist við í Icesave eða um afstöðu sína til ESB. Þóra segist vilja vera sameiningartákn en ætlar ekki að skifta sér af neinu - nema skutlast um landið með innihaldslaust og óskiljanlegt krúsindúllutal handa landsbyggðinni, sem á betra skilið en að hlusta á hana bla, bla um ekkert. Þjóðin vill traustan mann eins og Ólaf Ragnar sem stendur með okkur á ögurstundum og hefur reynst sannur þjóðhöfðingi.

Sólbjörg, 14.6.2012 kl. 20:53

24 identicon

Mér finnst Jón Jónsson í aths. nr. 12 ná kjarna málsins hér: "Ef eingöngu Andrea, Herdís og Ólafur væri í boði fengi Ólafur aldrei atkvæði mitt."

Svo sorglegt sem það er. En fyrir mig og marga aðra er þetta uppskrúfaða, innihaldslausa og samfylkingarlyktandi framboð Þóru bara til að auka pólitíska úlfúð og tortryggni.

Og þá finnum ég og fleiri traust í Ólafi Ragnari Grímssyni.

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 14.6.2012 kl. 21:04

25 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

....og ég í hefðinni, Þóru Arnórsdóttur. Mun kjósa hana

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 15.6.2012 kl. 02:11

26 Smámynd: Skeggi Skaftason

Ásthildur #22,

ég get rökstutt mína afstöðu til ÓRG. Ég hlustaði t.d. á allt Sprengisandsviðtalið við hann. Þar gerði hann mjög mikið úr því að Þóra hafði sagt að forseti ætti að fylgja utanríkisstefnu ríkisstjórnar. Þetta fannst Ólafi af og frá og í engu samræmi við stjórnarskrá! Hann tví- eða þrítók að þetta þýddi í dag að forseti ætti þá að fylgja utanríkisstefnu Jóhönnu Sigurðardóttur, með hleykslunartón.

Með þessum hætti var Ólafur að fylgja straumum í dag og vísvitandi gera lítið úr sitjandi ríkisstjórn, en auðvitað í leiðinni að styggja þá í þessu landi sem styðja ríkisstjórnina og hennar verk.

Ég ætla ekki hér að fara að rífast um ríkisstjórnina og virði það að fólk hafi mismunandi skoðanir á henni. Það finnst mér alveg sérstaklega að forseti eigi líka að gera! en ekki espa fólk upp í eitthvert karp um stjórnina og forsætisráðherra.

Þannig forseta vil ég ekki hafa, sem gengur í lið með stjórnarandstöðu af því það hentar vinsældaveiðum í dag.

Skeggi Skaftason, 15.6.2012 kl. 10:52

27 Smámynd: Skeggi Skaftason

Sjálfstæðismenn styðja Þóru

Ekki verður af nafnalista sem birtist í Dagskránni í gær séð að Norðlendingum þyki Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi eyrnamerkt Samfylkingunni eins og sumir andstæðingar hennar hafa gefið í skyn. Þar eru nöfn nokkurra stuðningsmanna Þóru opinberlega nefnd og má sjá að fólk úr öllum áttum í bæjarlífinu lýsir yfir stuðningi við framboð Þóru gegn sitjandi forseta.

Skeggi Skaftason, 15.6.2012 kl. 10:56

28 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ólafur hefur aldrei nýtt sér neiðarhemilinn nema að það hafi verið mikil undirskriftasöfnun í gangi ég hef tekið þátt í því og var afar ánægð með hans frammistöðu þar.  Reyndar er það svo að mínu mati og margra annara þá er Ólafur miklu nær þjóðarpúlsinum en ríkisstjórnin nokkurn tímann, þar sem hún ríkisstjórnin virðist algjörlega einangruð í fílabeinsturni. 

Þess vegna vil ég hafa Ólaf áfram þar sem ég treysti honum best til að hlusta á þjóðina og taka sínar ákvarðanir samkvæmt því en ekki duttlungum fólk sem komið er niður fyrir 20% í skoðanakönnunum og er óvinsælasta ríkisstjórn allra tíma.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2012 kl. 12:43

29 identicon

Ólafur er enginn fylgismaður stjórnarandstöðunnar, og fráleitt og fáránlegt að halda slíku fram um þennan gamla, góða og gilda jafnaðarmann. En eins og allir góðir menn, sama hvar þeir staðsetja sig í pólítík, þá getur enginn maður játað skilyrðislausa hollustu sína þeim sem hafa svikið hugsjónir sínar. Ég ólst upp í Svíþjóð Olaf Palmes og veit að ríkisstjórn Íslands er eins langt frá því að vera nein "vinstri stjórn" og hugsast getur. Ríkisstjórn Íslands í dag er jafn innantóm og sú sem setti landið á hausinn, í eigu sama auðvaldsins og berst fyrir sömu hagsmunaöfl, á móti fólkinu í landinu. Alvöru jafnaðarmaður svíkur ekki fólkið í landinu þó svín í ætt við þau í Animal Farm og gerfi-jafnaðarmenn eins og einfeldningurinn elliæri hún Jóhanna Sigurðardóttir eða viðbjóðurinn og ómennið hann Össur geri það. Ólafur sannaði að hann hefur ekki svikið okkur og ekki heldur hina stærri hugsjón jafnaðarmennskunnar. Þjóðarskuldir eru helsta dánarorsök fátækra barna í dag, en ekki skortur á matvælum eða annað, það er einungis afleiðing, ekki orsök. Og það eru þjóðir hinnar gömlu, hnignandi og deyjandi stórskuldugu og syndugu Evrópu sem halda þessu þjóðum í skuldafangelsi. Til dæmis er fátækt Haítímanna í raun til komin út af skuld landsins við Frakka. Afríka er öll í skuldasárum og þarf að búa við að Evrópumenn blóðmjólki hana og svo framvegis. Þeir sem þekkja ekki heildarmyndina og hvað raunverulega bjó á bak við það að forsetinn neitaði Icesave, þeir kynni sér sögu Rómarveldis og hvað gerist þegar barbararnir koma og leggja allt í rúst.........en við eigum von á innrás úr suðri og réttlátum hefndum ef við leggjum ekki niður þjóðarskuldir þær sem stráfella lítil börn, og látum setja lög (eins og ESB og Bretland eru bæði farin að hugleiða, að íslenskri fyrirmynd) sem koma í veg fyrir ástand það sem myndaðist hér á Íslandi. Þjóðarskuldir verður að gera ólöglegar og aflétta þeim. Kynnið ykkur átakið make poverty history. Helstu talsmaður þess er Bono í U2, bara svona nefni til gamans, og hefur hann gott fylgi frá mörgu helsta athafnafólki heims, svo sem Bill Gates og öðru góðu fólki http://www.makepovertyhistory.org

SANNLEIKURINN (IP-tala skráð) 15.6.2012 kl. 13:14

30 identicon

PS: Það mun nefnilega koma í ljós og verða greint frá í mannkynssögubókum síðar meir (ef góðu öflin vinna og mannkynsins bíður eitthvað annað en fasismi og þrældómur, það er að segja...) að ákvörðun Íslendinga um að hafna Icesave varð bæði fjölda Evrópumanna innblástur og hafði loks áhrif á ríkisstjórnir Evrópu...og það sem er mun mikilvægara, skapaði lagalegt fordæmi sem skipti máli í því að losa þriðja heims ríkin og fyrrum nýlendur undan skuldum af því tagi sem ein alræmdasta gamla nýlendan ætlaði að hneppa Íslendinga í (sem hefði verið jafn óréttlátt og orðið til með mjög sambærilegum hætti og þegar Frakkar hnepptu Haítí og ýmsar Afríkuþjóðir í skuldafangelsi, þó það hefði ekki endilega haft jafn slæmar afleiðingar fyrir Íslendinga og okkar minnstu bræður, þá hefði það verið með öllu siðlaust og óréttlætanlegt og einungis skammsýnt fólk sneytt sannmenntun og raunverulegri yfirsýn (sama hversu skólað það kann samt að vera, sem dugir bara ekki eitt og sér) gerir sér ekki grein fyrir þessu.

SANNLEIKURINN (IP-tala skráð) 15.6.2012 kl. 13:24

31 Smámynd: Skeggi Skaftason

Ásthildur,

ég virði þínar skoðanir.

Mér finnst þó sorglegt að þessar kosningar um forseta snúist í huga margra um að velja annað hvort Ólaf Ragnar eða núverandi ríkisstjórn.

Það er margt að í íslenskri pólitík. Ég sé ekki að Ólafur Ragnar bæti þar úr á neinn hátt á næstu fjórum árum, nema síður sé.

En um þetta erum við ósammála. Góða helgi! :-)

Skeggi Skaftason, 15.6.2012 kl. 15:07

32 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góða heldi Skeggi minn sömuleiðis.  Við hugsum ólíkt, en sennilega viljum við bæði landi og þjóð allt það besta, svo er bara spurning um sýn á hvað er heppilegast að gera.  Þannig verður það og mun alltaf verða.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2012 kl. 18:52

33 identicon

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem kjósa hana eru þó einfaldlega hálfvitar sem kjósa hana bara afþví hún er sæt, var í sjónvarpinu, og DV og hin slúðurblöðin sögðu þeim það, og svo grætur það væmnum tárum yfir myndinni sjúklegu þar sem börnin mæna tilbeiðsluaugum á hina ljóshærðu móður sína eins og hún væri gyðja en ekki móðir þeirra, því svona fólk saknar í anda tíma einræðis þar sem einvaldar og kóngar létu almennt taka af sér svona myndir (þó það hafi síðan lagst af, vegna óbeitar fólks á slíku, nema helst í Sovétríkjunum, Þýskalandi Hitlers og slíkum fráhvörfum frá lýðræðinu á okkar tímum. Sem sagt þetta fólk er bara plebbar og skrýll, en það er þó með meiri afsökun en misheppnuðu snobbin sem kjósa hana af þeim sprenghlægilega misskilningi að það sé fínt (svona eins og fólks sem fer uppdubbað á einhvern fábjána söngleikinn og heldur að það sé afskaplega fínt að fara á Hamlet og óstjórnlega menningarlegt, eða lið sem kaupir vatnslitamynd eftir einhvern amatör lýðskrumsmálarann og telur sig þar með orðið hámenningarlegt og eiga málverk.)

Ágúst (IP-tala skráð) 17.6.2012 kl. 11:16

34 identicon

,,Forsetaembættið er virkt valdamikið embætti'' - ég hló

jón gamli (IP-tala skráð) 23.6.2012 kl. 03:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband